Ašalvalmynd

Auglżsing

Ašventan

Jæja þá er kominn desember. Hef verið rosalega dugleg að hreyfa mig sl. mánuði, mjög dugleg. Ég hef púlað af miklum krafti 3-6x í viku og undanfarin mánuð hef ég verið nær tölunni 6 en 3. Er mjög stolt af mér og hef verið mjög drífandi.

Datt samt í einhvern letigír í síðustu viku og fór ekki nema á mán og þriðjudag í ræktina. Vaknaði svo um hálf sex í morgun eins og alla mánudaga, fór framúr til að fara í ræktina, ætlaði að leggjast AÐEINS uppí en vaknaði næst kl. korter yfir 6 orðin of sein í tímann sem ég fer alltaf í á mánudagsmorgnum og ákvað þá að fara bara ekki neitt heldur svaf bara á mínu græna eyra. Hehe hefði nú alveg getað farið á brettið í 45 mín.... Minn akkilesar-hæll er að núna þegar jólin nálgast get ég verið að dúlla mér allt of lengi frameftir, í jólakortum, föndri og þrifum og fer þá ekki í rúmið fyrr en eftir miðnætti og þá er ekki auðvelt að vakna þegar klukkan hringir 5:20. En það þýðir ekki að velta sér upp úr því....

... Ég ætla í fyrramálið í staðinn og svo á miðvikudag og aftur á föstudag og næ þá allavegna 3x í vikunni. Það þýðir ekkert annað en að hrökkva strax aftur í gírinn svo þetta verði ekki svona fram að jólum. Ótrúlegt hvað maður þarf alltaf að kýla sig í gírinn aftur og aftur þrátt fyrir að maður viti að hreyfingin er svo góð fyrir mann líkamlega og andlega og er bara alls ekkert leiðinleg þegar maður er kominn á staðinn.

Vigtin hefur verið á mjög góðu róli, ég rokka upp og niður um 1-2 kg (fer aðallega eftir því hvar ég er stödd í tíðarhringnum) en vigtin í morgun sýndi 61,8 kg bara glæsilegt. Stefni að því að þyngjast ekki meira en hámark 1,5 kg um jólin og komast á fullt skrið í hreyfingu ekki seinna en 12. janúar.

Var að fá mér hjól og ætla að hjóla í vinnuna í vor og sumar, hlakka svo til. Það tekur mig um rúman klukkutíma en það verður bara gaman og þolið verður fljótt að rjúka upp.

Hafið það gott á aðventunni, hugsið vel um ykkur og lesið eitthvað uppbyggilegt og jákvætt.

Kveðja Drekinn stóri og stælti

Sśśśpeer !

Allt fínt að frétta er farin að hamast á fullu í ræktinni (en ekki að hamstra í búðunum hehe) og er komin með þvílíkan hug á stöðugum framförum, bæði hvað varðar þol, styrkleika og svo náttúrulega spillir ekki fyrir að maður verður algjör pæja. Vigtin komin á sinn stað og var ég 61,7 kg í morgun sem er svipað og ég fór lægst fyrir sumarfrí. Þrekið alltaf að aukast enda ekki annað hægt þegar maður púlar 4x í viku. Er farin að fara í ræktina kl. 6 á morgnana og það kemur mér á óvart hvað það er auðveldara en ég hélt, að vakna svona snemma. Það er víst satt að eftir því sem maður kemst í betra form því betur sefur maður.

Við stelpurnar ætlum að kíkja út á lífið eftir þrjár vikur og er stefnan tekin á að vera geggjað duglegar fram að því. Hlakka til að vera algjör skvísa enda ekkert smá langt síðan ég hef djammað með stelpunum eða heilt ár eins og þær voru að benda mér á um daginn hummm humm, en það er nú bara svona forgangsröðunin breytist aðeins þegar maður er komin með börn.   

Ætla að verða orðin 60 komma eitthvað fyrir þann tíma.

Kveðja Drekinn stóri

Allt į góšu róli

Er búin að eiga æðislegt sumar þar sem mikið var ferðast innanlands og gengið upp um fjöll og firnindi, dásamlegt. Náði að koma sjálfri mér á óvart í fjallaklifri og náði að afreka hluti sem að ég hefði aldrei trúað að ég gæti gert áður, kom sjálfri mér og öðrum í kringum mig á óvart og sannaði að maður getur allt ef að hugurinn fylgir manni og maður er nógu ákveðinn að gefst ekki upp.

Þyngdist um 3-4 kg í grillveislum sumarsins, var komin í 65-66kg núna í ágúst en mér hefur sjaldan liðið betur en nú og sýndi viktin í morgun 63,0 kg slétt sem er bara mjög gott enda hreyfingin og mataræðið komið í sýna réttu rútínu aftur eftir óregluna í sumar.

Fer í ræktina 4-5x í viku og tek vel á því nú er markmiðið að vera komin í mitt besta líkamlega form síðan ég var unglingur í íþróttum (og fyrir barneignir). Hlakka til að auka þolið er hætt að spá mikið í vigtina þó svo að ég stígi á hana allavegna einu sinni í viku til að minna mig á ef hún fer að fara mikið upp á við og þá gríp ég inn í og passa mig betur.

Stærsta vopnið í þessum árangri að hafa náð að missa öll þessi kíló og halda þeim fjarri er að ég held áfram að vinna í mér andlega og tala við mig á jákvæðann hátt daginn út og daginn inn, lesa uppbyggilegar bækur og horfa öðru hvoru á jákvæð motivations myndbönd á Youtube. Alltaf þegar ég finn að ég er að verða þyngri andlega þá gríp ég inn í horfi á jákvæðar hliðar lífs míns, neyði mig í að lesa eða horfa á eitthvað peppandi og viti menn þetta virkar og er mér lífsnauðsynlegt. Auk þess að hafa reglufestu í svefni, hreyfingu og mataræði. Svo hef ég verið duglegri en nokkru sinni að rækta vináttusambönd við fjölskyldu og vini og makann og börnin og allt skilar sér þetta í ánægjulegra lífi og minni líkur á að manni leiðist og sitji heima og borði snakk. En þetta gerir enginn fyrir mann og þetta er hellings vinna á hverjum degi en launin eru líka ríkuleg. Fyrst þarf að greina vandann hvað er það sem veldur manni vanlíðan og taka síðan á honum á sinn hátt eða með hjálp fagaðila sálfræðinga og þess háttar.

Gangi ykkur öllum vel og endilega finnið kjart til að taka skrefið og vinna á vandanum.

Kveðja Drekinn Stóri, sterki og ánægði

Sumariš er tķminn...

Já ég elska sumarið, hef ekki tímt að setjast við tölvuna í allt sumar svo nú ætla ég að skella inn smá bloggi. Steig á vigtina í morgun og er 61,8 kg sem er bara frábært, -16,5kg farin í allt. Ætla að setja" 60 komma eitthvað kg" að markmiði en ætla samt fyrst og fremst að halda áfram að bæta þol og styrk.



Í maí mætti ég ekkert í ræktina og hreyfði mig eiginlega ekkert í staðinn heldur, byrjaði að borða nammi aftur (eða réttara sagt gúffa því í mig í bílförmum) og á stuttum tíma var ég orðin 64 kg og fann um leið að ég var aðeins þyngri andlega.

Horfði á stöðuna og í staðinn fyrir að gera eins og ég hefði venjulega gert að rakka mig niður þá tók ég bara þá ákvörðun að hreyfa mig meira og snarhætta að borða nammi, fór að fá mér oftar salatbar í hádeginu og taldi sjálfri mér trú um að þetta væri ekkert mál að ná þessu niður aftur og stelpur það var ekkert mál. Ótrúlegt hvað það skiptir miklu máli að hamra það inn í hausinn daglega og oft á dag að maður geti hlutina og þá verða þeir svo miklu auðveldari.

Hef líka borðað fullt af salati með grillmatnum, og notað kotasælu með í staðinn fyrir grillsósurnar en leyfi mér smá kartöflusalat og smjör á bökuðu kartöflurnar ummm mjög gott. Passa bara að grilla fullt af grænmeti með þannig að hlutföllin eru hæfilegt magn af kjöti/kjúlla/fisk, fullt fullt af grænmeti og salati og smá óhollusta í bland þannig eru grillveislurnar ekkert vandamál (ef mér er boðið í grill býðst ég til að koma með salatið eða grænmetið sem er oftast vel tekið og tryggi þannig að það sé örugglega salat með, sniðug).



Finn líka að maður verður alltaf að vera á tánum og vera duglegur að fylgjast með hlutunum og hreyfa sig. Nenni alls ekki að fara inn í ræktina en hef farið með krökkunum í sund og leikið við þau í lauginni í staðinn fyrir heita pottinn ,hellings hreyfing í því, svo hef ég farið á fjöllin í kringum Reykjavík öðru hvoru (Esjuna, Úlfarsfell, Helgafell, Vifilfell ofl.) og svo hef ég gengið eða hjólað aðeins úti á kvöldin já eða slegið garðinn og þannig er ég meðvitaðri um að gera eitthvað sem krefst hreyfingar 3-6x í viku.



Er að fara í helgarferð til London með vinkonum mínum, svona stelpuferð og hlakka ekkert smá til það verður rosalega gaman. Síðan fer ég í sumarfrí í júlí sem verður að mestu í tjaldi og á fjöllum.

Sumarið er ákkúrat tíminn til að byrja að taka á málunum og ekki halda að maður þurfi bara að taka á þeim í stutta stund þetta verður að vera stöðug breyting á lífstíl en ekki örvænta þetta verður auðveldara og skemmtilegra eftir því sem maður nær meiri árangri og eftir því sem maður byggir upp meira þol og styrk þá þarf ekki að hafa eins fyrir þessum heilbrigðari lífstíl því daglega brennslan verður meiri og það er auðveldara að hreyfa sig og vera virkari þegar maður hefur betra þol.

Ég ætlaði ekki að trúa vigtinni í morgun hvað það hefur gengið vel að ná vigtinni niður aftur svo ég mældi líka fituprósentuna sem var 26,4% á mínum mæli sem þýðir ca. 20,6 % á mælinum sem huggulegi einkaþjálfarinn á (sem er n.b. í fríi frá okkur í sumar). Þetta staðfesti að þetta er ekki bara vökvi/vöðvar sem fóru heldur er fituprósentan líka að lækka í samræmi við vigtina.

Hafið það frábært í sumar
Kveðja Drekinn stóri

16 kķló fokin śt ķ vešur og vind

Já var ákkúrat 62,3 kg á  vigtinni núna í morgunsárið, sama vigtin og ég keypti mér fyrir einu og hálfu ári síðan þegar ég tók ákvörðuinina um að nú gengi þetta ekki lengur. 78,3 sýndi hún þá, svo það  eru komin -16 kíló í heildina. Ég var reyndar 61,8 fyrir öll matarboð helgarinnar en ég er nú ekki að lengur að hengja mig svo mikið í tölunum.

Er farin að rífa mig á fætur fyrir kl. 6 á morgnana sem er talsvert átak fyrir mig þar sem að ég hef alltaf verið kvölddrollari og mjög morgunsvæfin frá því ég var barn. En þetta er æðislegt. Hef nægan tíma á morgnana get tekið mig til og lesið aðeins í bókinni sem ég er að lesa þessa dagana sem ég mæli hiklaust með en hún heitir Munkurinn sem seldi sportbílinn sinn og er eftir Robin S. Sharma. Þetta er svona andleg skáldsaga sem hefur það að markmiði að fræða fólk um leiðir til að lifa meðvituðu og lífsfyllra lífi. Margir punktar sem maður getur nýtt sér þó að ég sé kannski ekki að fara bókstaflega eftir öllu. 

Erum farin að plana fjallgöngur og útilegur sumarsins, ég elska vorið og sumarið, það er alltaf besti tími ársins.  Hef aldrei áður fengið alvöru sumarfrí þar sem það er tiltölulega stutt síðan ég kláraði háskólann og hef svo verið í fæðingarorlofi o.þ.h.

Gangi ykkur hinum líka rosalega vel og munið að tala fallega og á jákvæðan hátt til ykkar í huganum, það skiptir öllu máli.

Kveðja frá drekanum mjóa (hehehe).

Glešilegt sumar

Er komin á mjög gott skrið núna. Var búin að ná góðum árangri rétt fyrir jólin og var á blússandi siglingu. Jólin fóru í sukk og svínarí sem teygði sig út janúar og eiginlega út febrúar líka þega mesta skammdegið var. Hafði mig ekki af stað aftur og var þungt yfir mér andlega. Fór úr 64 kg upp í 67 kg aftur.

Tók mig á rétt fyrir páska, tók hugarfarið alveg í gegn, pískaði mig áfram upp úr öllu skammdegissleninu og hugsaði jákvætt. Sleppti öllu nammi um páskana og tókst hægt og rólega að fara niður á við aftur. Vigtin komin niður í 62,8 kg í morgun (á sömu vigt og ég byrjaði sem þá sýndi 78,3 kg). Nú eru semsagt komin -15,5 kg í heildina og einungis 2,5 kg í lokamarkmiðið mitt sem skal nást fyrir lok maí.

Fituprósentan er komin niður í 22,8 %. Reyndar eru mælarnir svo mismunandi annar sýnir 22,8% á meðan hinn sýnir 28,5% og að sjálfsögðu miða ég við þann sem sýnir lægri töluna en hann hef ég notað síðan ég byrjaði að mæta í fitumælingu hjá huggulega einkaþjálfaranum. Sá mælir sýndi 28,3 þegar ég var sem þyngst hjá honum). Núna er ég að horfa aðeins meira á fitupróssentuna og ummálið frekar en engöngu vigtina þar sem að ég er að lyfta töluvert og er því ekki að léttast endilega milli vikna þó að fituprósentan lækki og ummálið breytist.

Mér líður mjög vel og er mun orkumeiri æfi 3-5x í viku (ýmist, ræktin, sund eða út að ganga) og sleppi öllu nammi en fæ mér einstaka sinnum kökur eða ís í algjörum undantekningartilfellum ef það eru veislur eða svoleiðis og þá er það ekkert stjórnlaust. Nammið get ég ekki fengið mér án þess að missa mig og klára dallinn svo ég sleppi því bara alveg. Tek vítamín og lýsi, borða mikið af grænmeti og ávöxtum og fisk 3x í viku.
 
Það sem hefur breyst hvað mest hjá mér er hugarfarið, segi við sjálfa mig á hverju degi og oft á dag að ég sé kraftmikil, orkumikil, heilbrigð, grönn og hamingjusöm.  Hægt og rólega fer maður að sjá að maður getur stjórnað öllu með réttu hugarfari.
 
Gangi ykkur vel áfram og munið eftir réttu hugarfari með hækkandi sól

Kveðja Drekinn stóri

Gengur vel

Síðustu tölur á vigtinni segja 63,5 kg það lægsta sem ég hef verið síðastlliðin 2 ár. Gengur rosavel með mataræðið og hreyfingu er allt saman að mjakast áfram.

Hef aftur á mótit ekki verið dugleg að blogga en skelli kannski inn tölum aftur eftir hálfan mánuð.

Kveðja Drekinn stóri

Af staš aftur

Jæja hef ekki nennt að hugsa um mataræðið eða vigtina núna í janúar. Ég hef verið í einhverjum algjörum letigír, orkulaus og ómöguleg. Fór í vigtun í gær hjá huggulega einkaþjálfaranum og var 66,25 kg . Er búin að vera mjög dugleg að hreyfa mig og hef auk þess borðað mjög lítið nammi og þess vegna hef ég staðið í stað en nú er bara að halda áfram. Er byrjuð að skrifa matardagbók aftur og er að ná upp orkunni. Kannski var þetta bara skammdegið og veðrið.

Markmiðið mitt fyrir næstu vigtun eftir 2 vikur er 65,5 kg og niður um o,5% af fitu.

Hreyfingin er komin í fastar skorður ræktin 4x í viku, þar hleyp ég alltaf 5 km og lyfti auk þess 2-3 í viku.


Læt ykkur vita hvernig gengur eftir tvær vikur en ég er búin að lofa sjálfri mér að ná þessu markmiði.

kveðja drekinn stóri

Jólahįtķšin afstašin

Dásamlegt jólafrí að baki með alltof miklu letilífi, matarboðum og nammiáti. Steig á millivigtina í morgun sem hafði verið fórðruð um 2 kg +.

Jabbs aftur komin upp í 66,3 kg.

Stefni að því að vera orðin 60,3 kg í lok mars sem þýðir - 0,5kg á viku sem ætti vel að vera gerlegt.

Fer í næstu mælingu hjá einkaþjálfaranum eftir ákúrat viku og er markið sett á að vera komin a.m.k. niður í 65,8 kg.

Get nú samt verið mjög ánægð með mig eftir árið þar sem að ég er 12 kg léttari en í lok ársins 2006 :)

Gleðilegt nýtt ár átaksbloggarar og vona að ykkur eigi eftir að líða vel á árinu.
 
Kveðja Drekinn stóri sem er á lokametrunum.

Jólamęlingin góša

Nú er það ekki spurning að maður passi í jóladressið !!!!! (hehe)
Women's Fuschia Santa


Síðasta mælingin fyrir jól var í gær. Ég náði þeim markmiðum sem einkaþjálfarinn hafði sett kröfur um eftir hrasið síðast.

Tölurnar sögðu (mælingin síðast inni í sviga):

Þyngd: 64,4 kg (65,5kg)                           
Fituprósenta: 23,9 % (24,8%)   
                            
Fitumassi: 15,4 kg (16,3%) 

Þetta er það lægsta sem ég hef farið síðan ég byrjaði að taka mig taki, haustið 2006 en samanlagt eru farin - 13,9kg síðan þá eða nærri 28 smjörlíkisstykki . Stórt klapp á bakið og broskall fyrir það.

Síðan ég fór að fara í mælingu hjá huggulega einkaþjálfaranum í júlí hef ég allt í allt misst:

5,1 kg
4% af fitu

4,2 kg af smjöri (fitumassa)

Og
28,5 cm
 í ummál

Markmiðið er að hafa ekki bætt á mig í næstu mælingu sem verður 10.janúar, einkaþjálfarinn huggulegi gaf okkur svigrúm upp á 500gr.max þyngdaraukningu um jólin, spark spark.  

Ég er ekkert smá ánægð og er í góðu jafnvægi hugarfarslega núna, ætla sko að standa mig um jólin nú eru bara 2,1kg eftir í efri mörk langtímamarkmiðsins (62,3kg) og 4,4kg í lokatöluna jibbíííí .

Kveðja drekinn, sem er ekkert svo stór lengur

Sķša 1 af 6

Atburšarteljari

Teljari